Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. febrúar 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fékk rautt spjald fyrir að hrinda stuðningsmanni
Daniel Catano hér til vinstri
Daniel Catano hér til vinstri
Mynd: EPA

Kólumbískur leikmaður var rekinn af velli fyrir að hrinda stuðningsmanni sem hafði hlaupið inn á völlinn í upphafi leiks Deported Tolima og Millonaris í efstu deild í Kólumbíu.


Stuðningsmaðurinn hljóp inn á völlinn og sló Daniel Catano leikmann Millonarios í hnakkann og Catano brást við með því að hlaupa á eftir stuðningsmanninum og hrinda honum.

Þetta gerðist nánast um leið og flautað var til leiks en dómarinn stöðvaði leikinn eftir atvikið og gaf Catano rautt spjald.

Atvikið má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner