Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 15. febrúar 2023 13:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fjórir sem æfðu ekki hjá Man Utd fyrir leikinn gegn Barcelona
Sabitzer.
Sabitzer.
Mynd: Getty Images
Fjórir leikmenn voru fjarverandi á æfingu Manchester United fyrir leikinn gegn Barcelona í Evrópudeildinni annað kvöld.

Þeir Anthony Martial, Marcel Sabitzer, Antony og Scott McTominay verða ekki með á morgun í fyrri leiknum í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Antony, Martial og McTominay hafa glímt við meiðsli og Sabitzer mun taka út bann á morgun. Martial hefur mikið verið fjarverandi vegna meiðsla á tímabilinu, Antony hefur misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla á fæti og McTominay verður líklega lengur fjarverandi en fyrri tveir.

Casemiro æfði hins vegar með liðinu og verður klár í slaginn. Hann er að afplána leikbann í ensku úrvalsdeildinni, hefur tekið út tvo af þremur leikjum sínum.

Lisandro Martínez æfði einnig með liðinu en hann verður ekki með á morgun sökum leikbanns.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner