Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. febrúar 2023 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ramos pirraður eftir leik - Ýtti við ljósmyndara
Sergio Ramos.
Sergio Ramos.
Mynd: EPA
Sergio Ramos, varnarmaður Paris Saint-Germain, var pirraður eftir tap gegn Bayern München í Meistaradeildinni í gær.

Kingsley Coman skoraði eina mark leiksins gegn sínum gömlu félögum þegar hann átti skot beint á Gianluigi Donnarumma sem var ekki nógu snöggur að bregðast við.

PSG tókst ekki að jafna metin, en Benjamin Pavard varnarmaður Bayern verður í banni í síðari viðureigninni eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald og þar með rautt í uppbótartíma.

Ramos spilaði í vörn PSG sem tapaði þarna 0-1 á heimavelli sínum. Liðið er ekki í góðum málum fyrir seinni leikinn í Þýskalandi.

Spænski miðvörðurinn var vægast sagt pirraður eftir leik og ýtti við ljósmyndara sem var að reyna að ná myndum af því sem var að gerast inn á vellinum. Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner