Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 15. febrúar 2023 15:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Raunhæft að fá Sabitzer fyrir 20 milljónir evra
Mynd: Manchester United
Christian Falk, ritstjóri hjá íþróttadeild Bild í Þýskalandi, tjáði sig í dag um Marcel Sabitzer. Falk er með sterka tengingu við Bayern og nefndi upphæð sem raunhæft er að Bayern segi já við ef tilboð kemur í þann austurríska.

Sabitzer er miðjumaður sem er á láni hjá Manchester United frá Bayern Munchen út tímabilið.

Falk segir að 20 milljóna evra tilboð sé eitthvað sem raunhæft væri að Bayern myndi taka.

Sabitzer er ekki framarlega í goggunarröðinni á Bayern en hefur komið ágætlega inn í hlutina hjá United sem þurfti nauðsynlega á honum að halda sökum meiðsla Scott McTominay og Christian Eriksen.

Hann verður 29 ára gamall og kom til Bayern á sextán milljónir evra frá RB Leipzig sumarið 2021.

Sabitzer verður ekki með Man Utd á morgun gegn Barcelona þar sem hann tekur út leikbann.

Sjá einnig:
Sabitzer elskar lífið í Manchester
Athugasemdir
banner
banner
banner