Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 19. febrúar 2023 15:00
Aksentije Milisic
De Gea og Rashford sáu til þess að Man Utd leiðir í hálfleik
Mynd: EPA

Nú er í gangi leikur Manchester United og Leicester City í ensku úrvalsdeildinni en staðan er 1-0 fyrir United í hálfleik.


Gestirnir frá Leicester byrjuðu miklu betur og lá mark í loftinu frá þeim. Harvey Barnes komst einn í gegn á móti De Gea en Spánverjinn varði frábærlega frá honum.

Stuttu síðar átti Kelechi Iheanacho góðan skalla sem De Gea varði stórkostlega.

Það var þvert gegn gangi leiksins á 25. mínútu leiksins sem Marcus Rashford skoraði eftir sendingu frá Bruno Fernandes. Hinn sjóðheiti Rashford er ekkert að slaka á en hann þrumaði boltanum í fjærhornið.

Eftir þetta mark vöknuðu heimamenn aðeins og hafa verið að spila betur heldur en þeir gerðu fram að markinu hjá Rashford.

Líf og fjör á Old Trafford en með sigri getur United minnkað bilið á Man City sem situr í öðru sætinu.

Sjáðu markið hjá Rashford hér.


Athugasemdir
banner
banner