Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 19. febrúar 2023 19:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einkunnir dagsins: Ekkert sem stöðvar Rashford
Mynd: EPA

Manchester United er á fljúgandi siglingu þessa dagana en liðið sigraði Leicester 3-0 í dag. Marcus Rashford er sjóðandi heitur en hann skoraði tvö mörk.


Sky Sports valdi hann mann leiksins en David de Gea og Bruno Fernandes þóttu einnig standa sig vel. Þá kom Jadon Sancho sterkur inn á af bekknum.

Hinn ungi Alejandro Garnacho fann sig ekki í dag og fékk fimm í einkunn frá Sky Sports.

90min.com tók saman einkunnir úr 2-0 sigri Tottenham gegn West Ham þar sem Emerson Royal og Heung Min Son skoruðu mörkin.

Emerson er ekki þekktur fyrir að skora mörkin en hann átti flottan leik í kvöld og var valinn maður leiksins. Pierre-Emile Hojbjerg átti einnig flottan leik á miðjunni.

Varnarmennirnir Emerson og Angelo Ogbonna voru í miklum vandræðum og fá falleinkunn.

Man Utd: De Gea (8), Dalot (7), Lindelof (7), Martinez (7), Shaw (7), Sabitzer (7), Fred (7), Fernandes (8), Weghorst (7), Garnacho (5), Rashford (9).

Varamenn: Sancho (8), McTominay (6), Wan-Bissaka (6), Elanga (6), Mainoo (6).

Leicester: Ward (5), Castagne (5), Souttar (5), Faes (4), Kristiansen (6), Dewsbury-Hall (6), Mendy (6), Tete (7), Maddison (7), Barnes (7), Iheanach (6).

Varamenn: Tielemans (6), Soumare (6), Vardy (6), Praet (6).


Athugasemdir
banner
banner