Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. febrúar 2023 18:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Son kom af bekknum og gulltryggði sigurinn
Mynd: EPA

Tottenham 2 - 0 West Ham
1-0 Emerson ('56 )
2-0 Son Heung-Min ('72 )


Tottenham og West Ham áttust við í síðasta leik helgarinnar en þetta var mikilvægur leikur fyrir bæði lið en Tottenham gat komist upp í 4. sætið með sigri á meðan West Ham þurfti að minnsta kosti stig til að koamst upp úr fallsæti.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð rólegur en það kom þó upp atvik þar sem Tihlo Kehrer varnarmaður West Ham fékk boltann í höndina í teignum og Tottenham menn vildu vítaspyrnu en ekkert dæmt.

Snemma í síðari hálfleik komst Tottenham í skyndisókn og skoraði en markið kom úr ansi óvæntri átt. Ben Davies kom boltanum á Emerson Royal sem setti boltann í netið.

Heung Min Son hefur ekki fundið sig á þessari leiktíð og var bekkjaður fyrir leikinn eftir tap liðsins gegn Leicester í síðustu umferð.

Hann tryggði hins vegar Tottenham stigin þrjú í kvöld með marki þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka.


Athugasemdir
banner
banner