Tveir leikir fóru fram í B deild Lengjubikarsins í dag.
Í riðli tvö mættust Elliði og Sindri á Fylkisvelli. Í riðli fjögur mættust svo Dalvík/Reynir og Magni á Dalvíkurvelli.
Það var markalaust á Fylkisvelli í hálfleik en Ibrahim Sorie Barrie skoraði eina mark leiksins eftir tæplega klukkutíma leik fyrir Sindra. Þetta var fyrsti leikur liðanna á mótinu.
Dalvík/Reynir og Magni voru einnig að spila sinn fyrsta leik á mótinu en Jóhann Örn Sigurjónsson var hetja heimamanna þegar hann skoraði eina mark leiksins.
Elliði 0 - 1 Sindri
0-1 Ibrahim Sorie Barrie ('57 )
Dalvík/Reynir 1 - 0 Magni
1-0 Jóhann Örn Sigurjónsson ('72 )
Athugasemdir