Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 19. febrúar 2023 20:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Moyes með skýr skilaboð: Sjáum til úr hverju menn eru gerðir
Mynd: Getty Images

West Ham er í erfiðri stöðu eftir tap liðsins gegn Tottenham í kvöld. Liðið er komið í fallsæti en liðið mætir Nottingham Forest um næstu helgi.


David Moyes stjóri liðsins hefur náð flottum árangri með liðið undanfarin ár en það er mikil lægð þessa dagana. Hann sendi leikmannahópnum skýr skilaboð í viðtali eftir leikinn í dag.

„Ég veit að ég mun sjá úr hverju menn eru gerðir. Leikmennirnir hafa fengið góða mótspyrnu, sjáum til hver er klár í slaginn," sagði Moyes.

Það eru bara stórleikir framundan.

„Mjög stór," sagði Moyes aðspurður hversu stór leikurinn verður gegn Forest.

„Allir leikir eru stórir, meira segja var leikurinn í dag stór."


Athugasemdir
banner
banner
banner