Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. febrúar 2023 14:40
Aksentije Milisic
Mynd: Neymar sneri mjög illa á ökklann
Mynd: Getty Images

PSG vann dramatískan 4-3 sigur á Lille í dag þar sem Brasilíumaðurinn Neymar skoraði og lagði upp mark.


Slæmu fréttirnar fyrir PSG voru þær að Neymar meiddist í leiknum og var borinn af velli. Það eru einungis átta dagar í að PSG mæti Bayern Munchen í síðari leiknum í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Neymar sneri ökklann mjög illa eins og má sjá á myndinni neðst í fréttinni en hann var borinn af velli snemma í síðari hálfleiknum þegar PSG var 2-1 yfir.

Alls ekki góðar fréttir fyrir PSG og spurning hvað Neymar verður lengi frá vegna þessara meiðsla.


Athugasemdir
banner
banner
banner