Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. febrúar 2023 18:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Þegar Richarlison lítur í spegil verður hann vonsvikinn"
Mynd: EPA

Richarlison gekk til liðs við Tottenham í sumar eftir góða tíma hjá Everton undanfarin ár en hann hefur ekki fundið sig í hvítu treyjunni.


Hann hefur leikið 14 leiki í deildinni og á enn eftir að skora. Hann hefur skorað tvö mörk fyrir Tottenham en bæði mörkin komu í Evrópukeppni.

Honum tókst ekki að skora í sigri liðsins á West Ham í dag og var tekinn af velli fyrir Heung-Min Son sem tryggði sigur liðsins.

„Vonbrigðarkvöld fyrir Richarlison kórónað með því að hann er tekinn af velli fyrri sjötugustu mínútu fyrir Son. Þegar hann kemur heim og lítur í spegil verður hann vonsvikinn, ekki eins og hann hafi ekki reynt en það gekk bara ekkert upp," sagði Murray.


Athugasemdir
banner
banner