Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. febrúar 2023 21:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Dortmund jafnar Bayern að stigum - Mainz upp fyrir Leverkusen
Mynd: Getty Images

Dortmund er í 2. sæti þýsku deildarinnar eftir sigur á Hertha Berlin í kvöld.


Eftir jafntefli Bayern Munchen í gær gat Dortmund jafnað erkifjendur sína að stigum með sigri.

Karim Adeyemi og Donyell Malen sáu til þess að liðið var með 2-0 forystu í hálfleik. Hertha minnkaði muninn strax í upphafi síðari hálfleiks en Marco Reus og Julian Brandt skoruðu sitt markið hvor til að tryggja Dortmund sigurinn.

Bayern er áfram á toppnum en Dortmund og Union Berlin fylgja þar á eftir, öll liðin eru með 43 stig.

Mainz komst upp fyrir Bayer Leverkusen í kvöld þegar liðin mættust. Leverkusen fékk klikkaði á vítaspyrnu eftir rúmlega 20 mínútna leik en örfáum mínútum síðar náði Anthony Caci að refsa og koma Mainz yfir.

Liðin skiptust á að hafa forystu í leiknum en á 82. mínútu fékk Mainz vítaspyrnu þegar Amine Adli reif Silvan Widmer niður í teignum.Adli var rekinn af velli og Marcus Ingvartsen skoraði úr vítinu og tryggði Mainz 3-2 sigur.

Borussia D. 4 - 1 Hertha
1-0 Karim Adeyemi ('27 )
2-0 Donyell Malen ('31 )
2-1 Lucas Tousart ('46 )
3-1 Marco Reus ('76 )
4-1 Julian Brandt ('90 )

Bayer 2 - 3 Mainz
0-0 Edmond Tapsoba ('23 , Misnotað víti)
0-1 Anthony Caci ('26 )
1-1 Nadiem Amiri ('32 )
1-2 Leandro Martins ('45 )
2-2 Patrik Schick ('58 )
2-3 Marcus Ingvartsen ('82 , víti)


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 29 25 4 0 74 19 +55 79
2 Bayern 29 20 3 6 82 36 +46 63
3 Stuttgart 29 20 3 6 67 34 +33 63
4 RB Leipzig 29 17 5 7 67 33 +34 56
5 Dortmund 29 16 8 5 57 34 +23 56
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
8 Freiburg 29 11 6 12 41 52 -11 39
9 Hoffenheim 29 10 6 13 49 57 -8 36
10 Heidenheim 29 8 10 11 42 50 -8 34
11 Gladbach 29 7 10 12 50 56 -6 31
12 Werder 29 8 7 14 36 49 -13 31
13 Union Berlin 29 8 5 16 25 45 -20 29
14 Wolfsburg 29 7 7 15 34 50 -16 28
15 Bochum 29 5 12 12 34 59 -25 27
16 Mainz 29 5 11 13 30 47 -17 26
17 Köln 29 4 10 15 23 51 -28 22
18 Darmstadt 29 2 8 19 28 72 -44 14
Athugasemdir
banner
banner