Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   sun 19. febrúar 2023 16:30
Aksentije Milisic
Þýskaland: Union mistókst að komast á toppinn eftir jafntefli gegn botnliðinu
Það var ekki fagnað hjá Union í dag.
Það var ekki fagnað hjá Union í dag.
Mynd: EPA

Union Berlin 0-0 Schalke

Það var einn leikur á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í dag en þá mættust liðið í öðru sæti og liðið í neðsta sætinu.


Með sigri í dag gat Union Berlin farið í toppsætið en Bayern Munchen tapaði í gær gegn Mönchengladbach.

Fyrir leikinn í dag höfðu heimamenn unnið fimm leiki í röð en Schalke ekki unnið í síðustu sex.

Leikurinn var nokkuð jafn og það var ekki að sjá að gestirnir væru neðsta lið deildarinnar og Union að berjast um titilinn við Bayern Munchen. Það litu ekki mörg færi dagsins ljós.

Leiknum lauk því með sanngjörnu 0-0 jafntefli og því mistókst heimamönnum að nýta tækifærið og taka toppsætið af Bayern Munchen.

Liðið er nú með jafnmörg stig og Bayern en með lakari markahlutfall. Schalke er áfram í neðsta sætinu. Þetta var fjórða markalausa jafnteflið í röð hjá Schalke.


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 33 24 7 2 95 32 +63 79
2 Leverkusen 33 19 11 3 70 41 +29 68
3 Eintracht Frankfurt 33 16 9 8 65 45 +20 57
4 Freiburg 33 16 7 10 48 50 -2 55
5 Dortmund 33 16 6 11 68 51 +17 54
6 Mainz 33 14 9 10 53 41 +12 51
7 RB Leipzig 33 13 12 8 51 45 +6 51
8 Werder 33 13 9 11 50 56 -6 48
9 Stuttgart 33 13 8 12 61 51 +10 47
10 Gladbach 33 13 6 14 55 56 -1 45
11 Augsburg 33 11 10 12 34 49 -15 43
12 Wolfsburg 33 10 10 13 55 54 +1 40
13 Union Berlin 33 9 10 14 33 50 -17 37
14 St. Pauli 33 8 8 17 28 39 -11 32
15 Hoffenheim 33 7 11 15 46 64 -18 32
16 Heidenheim 33 8 5 20 36 60 -24 29
17 Holstein Kiel 33 6 7 20 49 77 -28 25
18 Bochum 33 5 7 21 31 67 -36 22
Athugasemdir
banner