Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 20. febrúar 2023 14:21
Elvar Geir Magnússon
Mögulegt að Nunez verði með annað kvöld
Darwin Nunez heldur um öxlina.
Darwin Nunez heldur um öxlina.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að það sé möguleiki á því að úrúgvæski sóknarmaðurinn Darwin Nunez verði leikfær annað kvöld þegar Liverpool tekur á móti Real Madrid í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Nunez meiddist á öxl í sigri Liverpool gegn Newcastle um helgina en á möguleika á að spila annað kvöld.

„Það er möguleiki á því að hann spili. Við skulum sjá hvernig hann tekst á við sársaukann og tökum svo ákvörðun," segir Klopp.

Cody Gakpo: Frábær tilfinning
Nunez skoraði fyrra mark Liverpool í 2-0 sigrinum gegn Newcastle á laugardaginn. Cody Gakpo gerði það síðara en Hollendingurinn hafði skorað sitt fyrsta mark fyrir félagið gegn Everton í leiknum á undan.

„Það er frábær tilfinning að skora sín fyrstu mörk. Að opna markareikninginn í gríðarlega mikilvægum leik gegn Everton var góð leið. Svo að skora gegn Newcastle en sá sigur sýndi að við erum að koma til baka eftir erfiðan kafla," sagði Gakpo á fréttamannafundi í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner