Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 20. febrúar 2023 12:40
Hafliði Breiðfjörð
Örfá sæti laus á námskeið Margrétar Láru og Elísu
Mynd: Aðsend

Á síðari hluta febrúar mánuðar fer fram spennandi námskeið fyrir fótboltafólk á aldrinum 15-17 ára á vegum Heil heilsumiðstöðvar.


Að námskeiðinu standa systurnar Margrét Lára (sálfræðingur) og Elísa (næringafræðingur) Viðarsdætur sem eiga að baki mikinn fjölda landsleikja fyrir Íslands hönd ásamt Grími Gunnarssyni sálfræðingi  hjá KSÍ og Einari Erni Guðmundssyni sjúkraþjálfara.

Góð ráð og fræðsla frá fagfólki hvernig unga fólkið okkar getur fyrirbyggt meiðsli, tekist á við mótlæti og aukið sjálfstraust í íþróttum. Einnig hvernig þau geta aukið orku og úthald við æfingar og leiki.

Um er að ræða fjögur skipti í heildina með fyrirlestra og fræðslukvöld með sálfræðingi, næringarfræðingi og sjúkraþjálfara. Námskeiðin eru tvisvar í viku i í 1,5 klukkustund í senn.

Dagsetningar:
21. febrúar (19:30-21:00)
23. febrúar (19:30-21:00)
28. febrúar (19:30-21:00)
2. mars (19:30-21:00)

Skráning:
[email protected]

Verð:
15.000 fyrir 4 fræðslukvöld (tamarkað pláss í boði)

Staðsetning:
Nethylur 2c, 110 Árbær


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner