Victor Osimhen framherji Napoli hefur verið stórkostlegur fyrir liðið að undanförnu en hann hefur skorað 18 mörk í 19 deildarleikjum á þessari leiktíð.
Hann skoraði hundraðasta markið sitt á ferlinum með félagsliðum og landsliðum þegar hann skoraði annað af mörkum liðsins í sigri á Sassuolo.
Þessi 24 ára gamli Nígeríumaður hóf feril sinn hjá Wolfsburg í Þýskalandi árið 2017 en hann skoraði ekki eitt einasta mark í 16 leikjum þar.
Hann var lánaður til Charleroi í Belgíu þar sem hann skorað 20 mörk í 36 leikjum. Svo var hann keyptur til Lille þar sem hann skoraði 18 mörk á einu tímabili áður en hann hélt til Napoli þar sem hann hefur skorað 47 mörk.
Frá 2019 hefur hann skorað 15 mörk í 22 leikjum.
Victor Osimhen reached 100 career goals quicker than the GOATs ???? pic.twitter.com/0fNipdeLn4
— GOAL (@goal) February 19, 2023