Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 20. febrúar 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vantar upp á sóknarleikinn hjá West Ham - Moyes er bjartsýnn
Danny Ings
Danny Ings
Mynd: Getty Images

David Moyes stjóri West Ham hefur áhyggjur af sóknarleik liðsins en West Ham tapaði 2-0 gegn Tottenham um helgina.


Liðið hefur aðeins skorað 19 mörk í deildinni en aðeins Wolves, Everton og Nottingham Forest hafa skorað færri mörk.

West Ham fékk Danny Ings frá Aston Villa í janúar en hann hefur lítið komið við sögu, hann er að koma til baka eftir meiðsli.

„Hann er bara ný kominn til liðsins, við vonumst til að hann komi með nokkur mörk fyrir okkur. Antonio hefur spilað vel í síðustu leikjum, við erum með Bowen sem var stórkostlegur í markaskorun á síðustu leiktið og svo Benhrama. Vonandi komast þeir allir í gang og Scamacca var að koma til baka eftir meiðsli," sagði Moyes.


Athugasemdir
banner
banner
banner