
„Ég er ofboðslega stoltur af öllum strákunum sem spiluðu hér í dag og liðinu sem heild," sagði Sverrir Mar Smárason leikmaður Kára eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Þór í Mjólkurbikarnum í dag.
Lestu um leikinn: Kári 3 - 5 Þór
„Þetta var vel uppsettur leikur hjá þjálfarateyminu, voru búnir að skoða vel hvernig Þór væri að fara sækja, við gáfum þeim rosalega lítið af færum á okkur. Við fáum á okkur mark í framlengingunni og eftir það kviknar einhver neisti sem á það til að gerast í bikarkeppni, það er ógeðslega gaman að vera partur af þessu, frábær hópur," sagði Sverrir.
Sverrir var gríðarlega stoltur af sínum mönnum í leikslok.
„Ég er stoltastur af hugarfarinu, sérstaklega eftir að við lendum undir. Það var búin að vera smá hræðsla hjá mér fyrir þennan leik, hvað gerist ef þeir komast yfir? Hvað gerist ef þeir komast í 2-0? Við erum með marga unga stráka sem eiga það til að missa kjarkinn þegar það gerist en mér fannst það alls ekki gerast í dag," sagði Sverrir.