Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 21. febrúar 2023 17:40
Ívan Guðjón Baldursson
Adeyemi missir af seinni leiknum gegn Chelsea
Mynd: Getty Images

Þýski sóknarmaðurinn Karim Adeyemi, sem gerði eina mark leiksins í 1-0 sigri Borussia Dortmund gegn Chelsea í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, verður frá keppni í þrjár vikur.


Adeyemi var í byrjunarliði Dortmund gegn Hertha Berlin um helgina og tókst bæði að skora og leggja upp áður en hann þurfti að fara meiddur af velli á 35. mínútu.

Meiðslin eru ekki alvarleg þar sem um vöðvameiðsli er að ræða en ungstirnið missir þó af gríðarlega mikilvægum leikjum næstu vikurnar. Dortmund á erfiða deildarleiki við Hoffenheim og RB Leipzig framundan áður en liðið kíkir í heimsókn til Chelsea þarnæsta þriðjudag.

Þetta eru slæmar fréttir fyrir Dortmund sem vonast til að Sebastien Haller geti leyst hinn öfluga Adeyemi af hólmi.


Athugasemdir
banner
banner
banner