þri 21. febrúar 2023 19:28
Ívan Guðjón Baldursson
Aron Einar meiddist í sigri
Mynd: Getty Images

Al Markhiya 0 - 2 Al Arabi
0-1 Rami Suhail Ali ('66)
0-2 Youssef Msakni ('90, víti)


Aron Einar Gunnarsson var á sínum stað í byrjunarliði Al Arabi sem heimsótti Al Markhiya í efstu deild í katarska boltanum.

Aron spilaði fyrstu 39 mínútur leiksins en var svo skipt meiddum af velli í stöðunni 0-0.

Leikurinn var afar jafn í fyrri hálfleik en liðsfélagar Arons settu boltann fjórum sinnum í netið í þeim síðari, tvisvar sinnum ólöglega. Al Arabi vann að lokum 0-2 og er í öðru sæti deildarinnar, einu stigi eftir toppliði Al-Duhail sem á þó leik til góða.

Al-Duhail er búið að sigra tíu leiki í röð í öllum keppnum og hefur ekki tapað fótboltaleik síðan í ágúst.

Al Arabi vonast til að binda enda á sigurhrinu Al-Duhail þegar liðin mætast í afar mikilvægum toppslag í byrjun mars.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner