Manchester City heimsækir RB Leipzig á miðvikudaginn en Englandsmeistararnir munu reyna að hrista af sér vonbrigðin eftir jafnteflið gegn Nottingham Forest á laugardaginn.
Liðið gæti verið án sóknarmiðjumannsins Kevin De Bruyne og varnarmannsins Aymeric Laporte en hvorugur þeirra var sjáanlegur þegar City æfði í dag.
Liðið gæti verið án sóknarmiðjumannsins Kevin De Bruyne og varnarmannsins Aymeric Laporte en hvorugur þeirra var sjáanlegur þegar City æfði í dag.
Báðir spiluðu gegn Forest, Laporte lék allan leikinn en De Bruyne, sem var langt frá sínu besta, var tekinn af velli seint í leiknum.
John Stones tók heldur ekki þátt í æfngunni í dag en hann er enn á meiðslalistanum. Meiðsli í læri.
Athugasemdir