Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. febrúar 2023 23:39
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Liverpool og Real: Joe Gomez skúrkurinn
Joe Gomez er ekki að eiga gott tímabil með Liverpool.
Joe Gomez er ekki að eiga gott tímabil með Liverpool.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Joe Gomez var versti maður vallarins í 2-5 tapi Liverpool gegn Real Madrid er liðin mættust í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fyrr í kvöld.


Gomez átti hluta að sök í nokkrum mörkum og fær 3 í einkunnagjöf Sky Sports, sem er minna heldur en Alisson Becker og Thibaut Courtois fá fyrir sína frammistöðu.

Markverðirnir gerðust báðir sekir um slæm mistök sem kostaði mark og eru einu leikmenn vallarins sem fá 4 frá Sky.

Það kemur engum á óvart að Vinicius Junior og Karim Benzema fái hæstu einkunnir vallarins. Þeir settu sitthvora tvennuna og áttu sitthvora stoðsendinguna og enda því með 9 í einkunn.

Liverpool: Alisson (4); Alexander-Arnold (5), Gomez (3), Van Dijk (6), Robertson (6); Henderson (6), Fabinho (5), Bajcetic (6); Salah (6), Nunez (6), Gakpo (5).
Varamenn: Firmino (6), Jota (5), Milner (6), Matip (6)

Real Madrid: Courtois (4); Carvajal (6), Militao (7), Rudiger (6), Alaba (5);
Camavinga (6), Modric (8), Valverde (6), Rodrygo (7); Benzema (9), Vinicius (9).
Varamenn: Nacho (7), Ceballos (6)


Athugasemdir
banner
banner