Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 21. febrúar 2023 11:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sema fær mikið hrós eftir viðtal í gær - Frábær fyrirmynd
Ken Sema.
Ken Sema.
Mynd: Getty Images
Ken Sema, leikmaður Watford, hefur fengið mikið hrós fyrir það að mæta í sjónvarpsviðtal eftir 3-2 sigur Watford gegn West Brom í Championship-deildinni í gær.

Sema, sem er frá Svíþjóð, var maður leiksins þar sem hann skoraði tvennu í sigrinum.

Sema glímir við stam en það getur verið erfitt fyrir þá sem glíma við talmein að koma fram opinberlega.

Svíinn sýndi mikið hugrekki með því að mæta í sjónvarpsviðtal eftir leikinn og sýndi þar hversu mikil fyrirmynd hann er.

Hægt er að sjá viðtalið hér fyrir neðan en Sema. Hann hefur fengið mikið hrós, skiljanlega.

Með því að smella hérna er hægt að fara á vefsíðu Málbjargar, félag um stam á Íslandi.


Athugasemdir
banner