Arsenal leggur fram tilboð - Schick til Englands - Emi á útleið og fer Inzaghi til Sádi?
Katie Cousins: Höfum það sem til þarf
Anna Rakel: United bara, tek því
„Hefði getað sent en mig langaði svo rosalega mikið að skora"
Berglindi skemmt þegar henni var bent á áhugaverða staðreynd
Jón Óli: Stórkostlegar aðstæður
„Æsifréttamennska að mínu mati“ - Leikið í Grindavík á laugardag
Júlíus Mar: Eitthvað sem mig hefur dreymt um frá því ég kom til liðsins
Jökull eftir stórt tap: Við brotnum aðeins
Tobias Thomsen: Þetta var frekar klikkaður sirkus á köflum
Dóri Árna: Við þurfum ekki að mála einhvern skratta á vegg
Magnús Már: Tileinka þennan sigur Guðjóni Ármanni
Rúnar Kristins: Við vitum hvað við getum og við getum bætt okkur
Óskar vísar í Hernán Cortés: Spurði konuna hvort hún sæi einhver skip
Miklar væntingar gerðar til Víkings - „Við erum með rosalega stóran hóp“
Gylfi eftir fyrsta markið: Hentar mér kannski aðeins betur
Hrannar Snær: Erum með meira sjálfstraust í sóknarleiknum
Eiður Aron eftir sigur á ÍBV: Þetta er bara 'bisness'
Böddi glímt við veikindi: Vissi þá að ég þyrfti að klára þennan leik
Heimir Guðjóns léttur: Það gerist nú ekki á hverjum degi
Túfa: Hefðum getað gert tíu skiptingar í hálfleik
   sun 21. maí 2023 23:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kórnum
Birnir elskar að spila í Kórnum - „Síðasta tímabil var lærdómur"
Birnir Snær Ingason.
Birnir Snær Ingason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birnir Snær Ingason, leikmaður Víkings, sneri aftur á gamla heimavöll í kvöld er Víkingar unnu HK, 2-1, í Bestu deildinni.

„Þetta er bara geggjað. Þetta var mjög erfiður leikur. Mér fannst við töluvert betri í fyrri hálfleik og áttum að vera meira yfir en 1-0. Ég veit ekki hvað gerist í seinni hálfleik en hann var helvíti erfiður. Það var gott að loka þessu," sagði Birnir.

Lestu um leikinn: HK 1 -  2 Víkingur R.

Birnir var mjög líflegur í fyrri hálfleiknum sérstaklega og það var ljóst að hann ætlaði sér að skora.

„Ég ætla að skora í hverjum leik. Það var kraftur í mér í fyrri hálfleik. Það hefði verið gaman að skora," sagði Birnir og bætti við:

„Ég elska að vera hérna í Kórnum. Menn fagna því ekki að spila hérna inni en ég dýrka að vera hérna inni. Ég væri til í að fá fleiri leiki hérna. Það er ekkert sem ég þoli minna en eitthvað rok og djöfulsins þvæla úti. Það er alltaf logn hérna."

Honum finnst mikið til HK koma. „Þeir eru seigir. Þeir eru með Örvar upp á topp sem stekkur ekki, hann flýgur. Hann getur hlaupið endalaust og þeir voru mjög duglegir þarna frammi. Það er erfitt að eiga við þá en geggjað að vinna."

Víkingar eru búnir að vinna fyrstu átta leikina og Birnir hefur spilað mjög vel. „Maður hefði ekki trúað þessu fyrir mót en það er að koma erfið törn hjá okkur núna. Ástæðan fyrir því að mér hefur gengið vel er hausinn, sjálfstraustið. Ég er að finna mjög vel núna á þessu tímabil. Síðasta tímabil var lærdómur. Mér finnst ég vera kominn inn í þetta og ég er með miklu meira sjálfstraust. Við erum geggjað lið og erum góðir á öllum svæðum," sagði Birnir en hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner