Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. febrúar 2023 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Benzema: Þá sáum við hið raunverulega Real Madrid
Mynd: EPA
„Við viljum vinna Meistaradeildina aftur," sagði Karim Benzema, fyrirliði Real Madrid, eftir sigurinn gegn Liverpool í gær. Real er ríkjandi meistari eftir að hafa unnið Liverpool í úrslitaleik síðasta vo.

Real vann 2-5 endurkomu sigur á Anfield í gærkvöldi og er í bílstjórasætinu fyrir seinni leik liðanna í 16-liða úrslitunum. Benzema skoraði sjálfur tvö mörk í leiknum. Ekkert lið hafði áður skorað meira en þrjú mörk í Evrópuleik sem gestalið á Anfield og ekkert lið í sögu Meistaradeildarinnar hafði lent tveimur mörkum undir og unnið svo með þremur.

„Við sýndum karakter, skouðu mörk - við viljum vinna Meistaradeildina aftur. Eftir fyrstu fimmtán mínúturnar þá sáum við hið raunverulega Real Madrid. Fótbolti á þessu getustigi er erfiður. Þeir byrjuðu betur en við en þetta var stór leikur og við vorum tilbúnir," sagði franski framherjinn.

Real hefur unnið keppnina fimm sinnum á síðustu níu árum og er samkvæmt veðbönkum nú þriðja líklegasta liðið til að vinna keppnina. Manchester City er líklegast og Bayern Munchen kemur þar á eftir.
Athugasemdir
banner
banner