Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. febrúar 2023 18:58
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðin í Meistaradeildinni: De Bruyne og Laporte ekki með - Nkunku á bekknum
Man City verður án Kevin de Bruyne í kvöld
Man City verður án Kevin de Bruyne í kvöld
Mynd: Getty Images
Manchester City verður án Kevin de Bruyne og Aymeric Laporte er liðið heimsækir RB Leipzig í fyrri leiknum í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu klukkan 20:00 í kvöld.

De Bruyne og Laporte eru báðir að glíma við veikindi og ferðuðust því ekki með liðinu til Þýskalands.

Erling Braut Haaland er á toppnum hjá City-mönnum en það vantar lykilmann í lið Leipzig. Christopher Nkunku byrjar á bekknum hjá þýska liðinu.

Leipzig: Blaswich, Klostermann, Orban, Gvardiol, Halstenberg, Laimer, Schlager, Szoboszlai, Forsberg, Silva, Werner.

Man City: Ederson, Walker, Dias, Akanje, Aké, Gundogan, Bernardo Silva, Rodri, Grealish, Mahrez, Haaland.

Inter mætir Porto á Ítalíu á sama tíma en hér fyrir neðan má sjá byrjunarlið beggja liða.

Inter: Onana; Skriniar, Acerbi, Bastoni; Darmian, Barella, Mkhitaryan, Çalhanoglu, Dimarco; Lautaro Martínez, Dzeko

Porto: Diogo Costa; João Mário, Pepe, Marcano, Zaidu; Otávio, Grujic, Uribe, Pepê; Taremi, Galeno.
Athugasemdir
banner
banner