mið 22. febrúar 2023 22:37
Brynjar Ingi Erluson
Liggur ekkert á að selja Osimhen og Kvaratskhelia
Mynd: EPA
Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli á Ítalíu, liggur ekkert á að losa sig við Victor Osimhen og Kvarat Kvaraskhelia.

Napoli er eitt mest spennandi lið Evrópu um þessar mundir en það er með fimmtán stiga forystu á toppnum í Seríu A og stefnir allt í fyrsta titil liðsins síðan 1990.

Osimhen og Kvaratskhelia hafa verið að leika sér að varnarmönnum deildarinnar en báðir hafa verið orðaðir við stærstu félög Evrópu.

De Laurentiis væri vel til í að halda þeim en allir eru falir fyrir rétt verð.

„Nýju leikmennirnir eru afar áreiðanlegir. Það sem ég elska við þetta lið er að það eru svo miklu meira en einhverjir einstaklingar. Það að við séum núna með Osimhen, Kvaratskhelia, Kim og fleiri leikmenn á miðjunni segir manni að þetta lið eigi eftir að endast.“

„Ég er mjög góður að semja við leikmenn, þannig þegar Osimhen og Kvaratskhelia koma til mín þá geta þeir ekkert gert. Þannig það verður ekkert mál að halda þeim. Ég mun hins vegar aldrei segja aldrei. Stundum koma tilboð sem ekki er hægt að hafna þannig maður veit aldrei í þessu. Ég held að við munum sjá þá skína til langs tíma,“
sagði
Athugasemdir
banner
banner
banner