Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 22. febrúar 2023 12:30
Elvar Geir Magnússon
Ryan Fraser látinn æfa með unglingaliðinu
Mynd: EPA
Ryan Fraser, vængmaður Newcastle, er látinn æfa með U21 liði félagsins.

Þessi 28 ára leikmaður er ekki inn í myndinni hjá Eddie Howe og ólíklega talið að hann eigi afturkvæmt í aðalliðið. Hann hefur ekki spilað síðan í október.

Búist er við því að Fraser, sem er fyrrum leikmaður Bournemouth, færi sig um set í sumar.

Síðasti byrjunarliðsleikur hans fyrir Newcastle kom gegn Bournemouth í september.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner