Xavi, þjálfari Barcelona, segist vera í reglulegu sambandi við Lionel Messi en sá argentínski er orðaður við endurkomu til félagsins í sumar.
Augnablikið var eftirminnilegt er Messi stóð tárvotur fyrir framan fjölmiðla fyrir tveimur árum og tilkynnti að hann væri á förum frá Barcelona en það var þó ekki það sem hann vildi.
Hann neyddist til að fara þar sem Börsungar gátu ekki skráð hann í hópinn vegna launaþaks og samdi hann því við Paris Saint-Germain.
Messi verður samningslaus í sumar og er talið líklegast að hann framlengi samning sinn þar en Xavi heldur þó í vonina að fá heimsmeistarann heim.
„Ég hef þegar sagt að þetta sé hans heimili og að dyrnar séu alltaf opnar. Hann er vinur og við erum alltaf í sambandi en þetta fer algjörlega eftir honum og hvað hann vill gera við framtíð sína. Besti fótboltamaður allra tíma mun alltaf passa inn í liðið,“ sagði Xavi.
Athugasemdir