Enski vængmaðurinn Jonathan Rowe er á leið til franska félagsins Marseille á láni fra Norwich City.
Rowe átti stórkostlegt tímabil með Norwich í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð, en hann skoraði þrettán mörk og var tilnefndur sem besti ungi leikmaður deildarinnar.
Þessi 21 árs gamli vængmaður er uppalinn hjá Norwich en hann lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu fyrir þremur árum.
Félög í ensku úrvalsdeildinni voru áhugasöm um að fá hann í sumar en hann hefur valið það að fara til Roberto De Zerbi og félaga í Marseille í Frakklandi.
Rowe gerir lánssamning út tímabilið og mun Marseille síðan kaupa hann fyrir 17 milljónir punda næsta sumar.
Leikmaðurinn mun ferðast til Frakklands á næstu dögum til að ganga frá samningum.
Athugasemdir