Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 23. febrúar 2023 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Di Zerbi mögulega á leið í leikbann
Roberto De Zerbi.
Roberto De Zerbi.
Mynd: EPA
Roberto Di Zerbi, stjóri Brighton, er mögulega á leið í leikbann eftir að enska fótboltasambandið gaf út ákæru á hendur honum.

Di Zerbi fékk að líta rauða spjaldið í leikmannagöngunum eftir 1-0 tap gegn Fulham um liðna helgi. Di Zerbi fékk þar rauða spjaldið fyrir að rífast við dómarann, Darren England.

Di Zerbi var búinn að fá tvö gul spjöld á tímabilinu áður en hann fékk það rauða.

Enska fótboltasambandið hefur ákært hann fyrir móðgandi hegðun í garð dómara og gæti Di Zerbi verið í leikbanni þegar Brighton mætir West Ham þann 4. mars næstkomandi.

Di Zerbi hefur fram á mánudag til þess að svara þessari ákæru.
Athugasemdir
banner
banner