Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 23. febrúar 2023 22:43
Brynjar Ingi Erluson
Fred: Gott að heyra stuðningsmenn syngja um mig
Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Fred átti góðan leik á miðjunni hjá Manchester United er liðið lagði Barcelona, 2-1, á Old Trafford í kvöld.

Fred skoraði jöfnunarmark United í upphafi síðari hálfleiks og kom liðinu aftur inn í leikinn.

Brasilíumaðurinn var í skýjunum með frammistöðu liðsins og sérstaklega í síðari hálfleik.

„Það er rosalega gott að heyra stuðningsmenn syngja nafn mitt en þetta var góður leikur sem við spiluðum í dag. Við þurfum að halda þessu áfram. Nú eigum við úrslitaleik á sunnudag og verðum að einbeita okkur algjörlega að honum núna,“ sagði Fred.

„Við spiluðum ekki eins og við vorum vanir að spila í fyrri hálfleiknum en í síðari hálfleiknum vorum við mun beri og skoruðum snemma. Við áttum gott spjall við þjálfarann og breyttum hugarfarinu og mættum öflugir inn í síðari hálfleikinn,“ sagði Fred enn fremur.
Athugasemdir
banner
banner