Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 23. febrúar 2023 11:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Geir Þorsteins nýr framkvæmdastjóri Leiknis
Geir Þorsteinsson.
Geir Þorsteinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Geir Þorsteinsson, fyrrum formaður KSÍ, hefur verið ráðinn sem nýr framkvæmdastjóri Leiknis í Breiðholti.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Hann hefur störf í byrjun mars og tekur við keflinu af Stefáni Páli Magnússyni.

Geir er Vesturbæingur, fæddur 1964 og uppalinn KR-ingur hvar hann gengdi stjórnarstörfum og gerðist svo framkvæmdastjóri áður en hann færði sig til KSÍ.

Í Laugardalnum átti Geir mörg farsæl ár, sem framkvæmdastjóri í 10 ár og svo formaður í framhaldinu. Síðustu tvö ár hefur Geir sinnt framkvændastjórn hjá Skagamönnum og færir sig nú upp í Breiðholtið þar sem félagið er að ganga í gegnum margvíslegar breytingar á stórafmælisári.

„Stjórn Íþróttafélagsins Leiknis þakkar Stefáni Páli Magnússyni að sjálfsögðu fyrir smaveruna og vel unnin störf síðustu ár á krefjandi tímum innan sem utan vallar. Við vonum að allt Leiknisfólk bjóði Geir Þorsteinsson velkominn til félagsins og hvetji til góðra starfa," segir í tilkynningu Leiknis.

Leiknir spilar í Lengjudeildinni í sumar eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner