Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson og hans menn í Bolton Wanderers eru komnir í úrslit EFL-bikarsins eftir 2-0 sigur á Accrington Stanley í undanúrslitum í gær.
Jón Daði var ekki með Bolton í leiknum vegna meiðsla en búist er við því að hann verði ekki meira með á tímabilinu.
Hann hefur þó svo sannarlega átt sinn þátt í að koma liðinu alla þessa leið.
Bolton var án hans í gær og hafði sigur gegn Accrington Stanley, 2-0, og hefur nú bókað sæti sitt í úrslit.
Úrslitaleikurinn fer fram á hinum sögufræga Wembley þann 2. apríl næstkomandi en andstæðingurinn er Plymouth Argyle.
Þetta verður í fyrsta sinn síðan 2011 sem Bolton spilar á Wembley en þá tapaði liðið fyrir Stoke í undanúrslitum enska bikarsins.
Athugasemdir