Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 23. febrúar 2023 20:59
Brynjar Ingi Erluson
Markvörður Sevilla skellti stuðningsmanni PSV í grasið - „Langaði að kýla hann"
Stuðningsmaðurinn bjóst ekki við þessu frá Dmitrovic
Stuðningsmaðurinn bjóst ekki við þessu frá Dmitrovic
Mynd: EPA
Marko Dmitrovic, markvörður Sevilla á Spáni, bauð upp á kennslu í sjálfsvörn í leik liðsins við PSV Eindhoven í Evrópudeildinni í kvöld.

Stuðningsmaður PSV hljóp inn á völlinn í þeim tilgangi að ráðast á Dmitrovic en plön hans voru ekki lengi að fara út um gluggann.

Dmitrovic tók stuðningsmanninn, skellti honum í jörðina og hélt góðu taki á honum áður en öryggisverðir fjarlægðu manninn.

„Hann ýtti í bakið á mér og reyndi að kýla mig. Sannleikurinn er sá að ég vildi kýla hann, en ég hef að vísu aldrei gert það í lífinu. Ég kann hins vegar sjálfsvörn,“ sagði Dmitrovic eftir leik en lið hans fór áfram í 16-liða úrslit með því að vinna samanlagt, 3-2.




Athugasemdir
banner
banner
banner