Enski landsliðsmaðurinn Bukayo Saka er nálægt því að ganga frá langtímasamningi við Arsenal. Þetta kemur fram í Daily Mail.
Saka hefur verið einn af bestu leikmönnum Arsenal síðustu ár og átt stóran þátt í því að koma því aftur meðal þeirra fremstu í landinu.
Englendingurinn verður samningslaus á næsta ári og er hann nú við það að framlengja samninginn.
Viðræður hafa gengið vel og er hann staðráðinn í að vera áfram en þetta verður langtímasamningur.
Hann mun þéna um 10 milljónir punda í árslaun og ætti allt að vera frágengið á næstu vikum.
Arsenal er nú að vinna í því að framlengja við nokkra lykilmenn en Granit Xhaka er einnig við það að skrifa undir framlengingu á samningi sínum.
Athugasemdir