Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 23. mars 2023 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Tim Sherwood er ekki sá fyrsti sem verður að þegja"
Pedro Porro
Pedro Porro
Mynd: EPA

Pedro Porro leikmaður Tottenham hefur svarað Tim Sherwood fyrrum stjóra félagsins fullum hálsi eftir að sá síðarnefndi gagnrýndi leikmanninn eftir sinn fyrsta leik.


Pedro Porro spilaði sinn fyrsta leik fyrir Tottenham eftir að hann kom frá Sporting gegn Leicester í 4-1 tapi. Sherwood er sérfræðingur hjá Sky Sports í dag og hann var ekki sáttur með frammistöðu Porro í leiknum.

„Tim Sherwood er ekki sá fyrsti sem verður að þegja. Ég vona að hann haldi áfram að segja slæma hluti um mig, það gerir mig sterkari. Láttu mig lausan úr fangelsi og ég mun eignast það," sagði Porro í viðtali við The Guardian.

Fjölmiðlamaður Guardian hitti hann á Spáni þar sem hann var staddur með spænska landsliðinu. Hann spurði Porro fyrst út í ummæli Antonio Conte en hann hafði þá ekki heyrt af því.

Hann vildi ekkert blanda sér í það mál.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner