Camavinga og Bastoni orðaðir við Liverpool - Ruben Neves á óskalista Man Utd - Framtíð Frank í óvissu
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
   lau 24. apríl 2021 17:35
Aksentije Milisic
Isiaka skoraði sjö í dag - „Mikilvægt að taka þennan leik alvarlega"
Mynd: Víkingur Ó.
Víkingur Ólafsvík mætti Gullfálkanum í Mjólkubikarnum í dag og vann hvorki meira né minna en 18-0 sigur.

Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 18 -  0 Gullfálkinn

Kareem Isiaka, ungur Englendingur sem er á mála hjá liðinu, fór hamförum og skoraði sjö mörk í leiknum. Hann lagði einnig upp eitt mark. Isiaka var tekinn í viðtal eftir leikinn.

„Við skoruðum mikið af mörkum og byrjum tímabilið af krafti. Ég var sáttur með strákanna að taka þessum leik af fullri alvöru, það var það mikilvægasta," sagði Isiaka.

„Það er gott fyrir liðsandann að vinna þennan leik svona stórt og við getum tekið þetta með okkur inn í tímabilið."

Isiaka fékk svo að vita af því að hann skoraði sögulegt mark fyrir liðið þegar hann kom leiknum í 16-0. Metið yfir stærsta sigur hjá Víkingi Ó var 15-0 fyrir leikinn í dag.
Athugasemdir
banner