Isak til Liverpool og Sesko til Newcastle - Aston Villa segir nei við United - Bayern ætlar sér að fá Díaz
   fim 24. júlí 2025 10:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liverpool hefur núna eytt langmestu - Svona gæti liðið verið
Hugo Ekitike.
Hugo Ekitike.
Mynd: Liverpool
Florian Wirtz.
Florian Wirtz.
Mynd: Liverpool
Liverpool er það félag í ensku úrvalsdeildinni sem hefur eytt mestu á félagaskiptamarkaðnum í sumar.

Eftir að félagið keypti franska framherjann Hugo Ekitike frá Eintracht Frankfurt í gær þá er eyðslan núna að nálgast 300 milljónir punda. Næsta félag er Chelsea sem hefur eytt 218 milljónum punda og þar á eftir er Manchester City sem hefur eytt 128 milljónum.

Englandsmeistararnir munu mæta með talsvert breytt lið til leiks á komandi tímabili og verður áhugavert að sjá hvernig Arne Slot, stjóri liðsins, stillir þessu upp.

Samkvæmt fréttum frá Englandi er Liverpool ekki einu sinni hætt á markaðnum. Næst á dagskrá er að kaupa miðvörð og er Marc Guehi efstur á óskalistanum. Þá er Alexander Isak hjá Newcastle draumaskotmark.

Svona er mögulega sterkasta lið Liverpool á komandi tímabili:



Komnir:
Florian Wirtz frá Bayer Leverkusen - 116 milljónir punda
Hugo Ekitike frá Eintracht Frankfurt - 79 milljónir punda
Milos Kerkez frá Bournemouth - 40 milljónir punda
Jeremie Frimpong frá Bayer Leverkusen - 29,5 milljónir punda
Giorgi Mamardashvili frá Valencia - 25 milljónir punda
Armin Pecsi frá Puskas Akademia - 1,5 milljónir punda
Freddie Woodman frá Preston - Á frjálsri sölu

Farnir:
Jarell Quansah til Bayer Leverkusen - 30 milljónir punda
Caoimhín Kelleher til Brentford - 12,5 milljónir punda
Trent Alexander-Arnold til Real Madrid - 10 milljónir punda
Nat Phillips til West Brom - 3 milljónir punda
Vitezslav Jaros til Ajax - Á láni
Athugasemdir
banner