Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
Sverrir Ingi: Meistaradeildin, komast á HM og grískt brúðkaup á dagskrá
Arnór Ingvi: Erum að taka inn fullt af upplýsingum
Dagur Dan: Ég skoraði gegn besta leikmanni allra tíma
Caroline Murray: Ég mun sakna þeirra mikið
Óli Kristjáns: Varð fljótlega ljóst að það var spenna hérna í kring um bekkina
Jóhann Kristinn: Fáir sem velta þessu fyrir sér að einhverju viti
Murielle: Fínt að við einar setjum pressu á okkur
Óskar Smári: Það er bara mikil stemning og fjör
Jóhannes Karl: Þetta er skref aftur á bak
Birta Georgs: Fengum hárblásara í hálfleik
Björgvin Karl eftir 6-0 tap: Sumir leikmenn mættu leggja sig meira fram
Nik Chamberlain eftir stórsigur: Verðum að standa undir væntingum
Tindastóll nældi í fyrsta stigið gegn Val - „Stórkostlegur árangur"
Elías Rafn: Sexí varsla frá McTominay
Albert um framtíðina: 15. júní tekur Fiorentina ákvörðun
Gulli vorkenndi markmanni Skota - „Gaf okkur blóð á tennurnar"
Þögguðu niður í skosku stuðningsmönnunum - „Verðum að hætta hugsa um okkur sem litla liðið"
Andri Lucas: Þýðir ekkert annað en að vera bara leiðinlegur til baka
1 á 1 mót Fótbolti.net og Adams Páls 17.júní - Prettyboitjokkó og Nadía Atladóttir skrá sig til leiks
Ívar Ingimars: Veit að við eigum miklu meira inni heldur en þetta
   fim 24. ágúst 2017 22:08
Brynjar Ingi Erluson
Addó: Ósáttur við þrjá menn í þessum leik
Arnar Þór Valsson
Arnar Þór Valsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Valsson, þjálfari ÍR í Inkasso-deild karla, var svekktur með 3-2 tap liðsins gegn Keflavík í kvöld. Hann var þó ósáttur með þrjá menn á vellinum í dag.

Lestu um leikinn: Keflavík 3 -  2 ÍR

„Nei, ég er ósáttur með þrjá menn í þessum leik. Það vita allir hverjir það eru og ég ætla ekki að fara nánar út í það en Keflavík er með mjög gott lið og besta liðið í deildinni að mér finnst," sagði Addó við Fótbolta.net en hann vísar þar væntanlega í dómaratríóið.

Leonardo Sigurðsson skoraði sigurmarkið fyrir Keflavík en Addó vildi meina að hann hefði verið vel fyrir innan og því rangstæður.

„Það sem á eftir að skipta sköpum í þessum leik eru litlu hlutirnir og það er nákvæmlega það sem gerðist og þetta var jafn leikur úti á vellinum. Við náðum að standa vel í þeim og við áttum að vera búnir að hreinsa boltanum í sigurmarkinu en þetta er pjúra rangstaða, hann er fjóra metra fyrir innan held ég."

„Algerlega. Mér finnst það og eins og ég segi þá á ég erfitt með að gagnrýna menn. Mínir menn gerðu fullt af mistökum og ég er búinn að gera fullt af mistökum en þau eru bara svo rosalega dýr mistök sem verða akkurat í svona aðstæðum."

„Það er öskrað á dómara og allt það en þetta er svo rosalega dýrt en annars var ég mjög sáttur með dómgæsluna og flottur leikur og gaman að horfa."

Það var mikil barátta í ÍR-ingum eins og hefur iðulega sést í sumar og það er það eina sem hann biður um frá sínum mönnum.

„Í raun og veru og það er það eina sem ég bið um frá mínum mönnum. Það er að skilja allt eftir úti á vellinum og geta labbað útaf honum og geta sagt að þeir hafi gert sitt besta. Þetta var jafn leikur og við jafnvel betri," sagði hann ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner