Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. febrúar 2023 22:29
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Swansea heppnir á heimavelli
Mynd: Getty Images

Swansea 1 - 1 Rotherham
1-0 Joel Piroe ('42)
1-1 Chiedozi Ogbene ('52)


Swansea City og Rotherham gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í eina leik kvöldsins í Championship deildinni.

Heimamenn í Swansea voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik og tóku forystuna skömmu fyrir leikhlé með marki frá Joel Piroe.

Dæmið snerist algjörlega við síðari hálfleik þar sem Chiedozi Ogbene var gífurlega snöggur að jafna fyrir Rotherham sem tók öll völd á vellinum í kjölfarið.

Gestirnir stjórnuðu gangi mála í síðari hálfleik þrátt fyrir að vera lítið með boltann og voru óheppnir að fullkomna ekki endurkomuna með sigurmarki.

Swansea er tíu stigum frá umspilsbaráttunni eftir þetta jafntefli á meðan Rotherham er sex stigum fyrir ofan fallbaráttuna.


Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leicester 44 30 4 10 86 39 +47 94
2 Leeds 44 27 9 8 80 37 +43 90
3 Ipswich Town 43 26 11 6 85 53 +32 89
4 Southampton 44 25 9 10 85 61 +24 84
5 West Brom 44 20 12 12 67 44 +23 72
6 Norwich 44 21 9 14 77 61 +16 72
7 Hull City 44 19 12 13 65 56 +9 69
8 Coventry 43 17 12 14 68 55 +13 63
9 Middlesbrough 44 18 9 17 64 60 +4 63
10 Preston NE 44 18 9 17 56 61 -5 63
11 Cardiff City 44 19 5 20 50 61 -11 62
12 Bristol City 44 16 11 17 51 47 +4 59
13 Sunderland 44 16 8 20 52 51 +1 56
14 Swansea 44 15 11 18 57 62 -5 56
15 Watford 44 12 17 15 59 58 +1 53
16 Millwall 44 14 11 19 43 55 -12 53
17 Stoke City 44 13 11 20 44 60 -16 50
18 QPR 44 13 11 20 41 57 -16 50
19 Blackburn 44 13 10 21 58 74 -16 49
20 Plymouth 44 12 12 20 58 69 -11 48
21 Sheff Wed 44 13 8 23 39 68 -29 47
22 Birmingham 44 12 10 22 48 64 -16 46
23 Huddersfield 44 9 17 18 47 74 -27 44
24 Rotherham 44 4 12 28 32 85 -53 24
Athugasemdir
banner
banner
banner