Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. febrúar 2023 22:16
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: SR afgreiddi Úlfana
Mynd: Raggi Óla

Úlfarnir 0 - 2 SR
0-1 Guðfinnur Þórir Ómarsson ('34 )
0-2 Arnar Kári Erlendsson ('90 )


Guðfinnur Þórir Ómarsson og Arnar Kári Erlendsson sáu um markaskorunina er Skautafélag Reykjavíkur lagði Úlfana að velli í C-deild Lengjubikarsins.

Guðfinnur kom SR yfir í fyrri hálfleik og ríkti spenna allt til loka þegar Arnar Kári Erlendsson innsiglaði sigurinn.

Liðin mættust í fyrstu umferð riðils 4 þar sem má einnig finna KFK og Hamar.

Til gamans má geta að Úlfarnir og SR þekkjast vel frá því í fyrra þegar liðin voru saman í riðli í 4. deildinni. Þar höfðu Úlfarnir betur, 4-2 á heimavelli og 2-2 á útivelli.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner