Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. febrúar 2023 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Einn úrvalsdeildarslagur í 16-liða úrslitum
Mynd: EPA
Mynd: EPA

Sextán liða úrslit enska bikarsins hefjast með fjórum leikjum í kvöld og svo verða seinni fjórir spilaðir annað kvöld.


Í kvöld mæta fimm úrvalsdeildarfélög til leiks og þrjú félög úr Championship deildinni. Það er því óumflýjanlega einn úrvalsdeildarslagur meðal leikja kvöldsins.

Þriðjudagskvöldið hefst í Stoke þar sem heimamenn taka á móti léttleikandi lærisveinum Roberto De Zerbi frá Brighton.

Skömmu síðar hefst viðureign Leicester á heimavelli gegn Blackburn Rovers og í kjölfarið fer eini úrvalsdeildarslagur kvöldsins af stað. Sá verður spilaður í London þegar spútnik lið Fulham tekur á móti Leeds United.

Englandsmeistarar Manchester City mæta svo til leiks í síðasta leik kvöldsins. Þeir heimsækja Championship-lið Bristol City í tilraun til að vinna sér inn sæti í 8-liða úrslitum.

Enski bikarinn
19:15 Stoke City - Brighton
19:30 Leicester - Blackburn
19:45 Fulham - Leeds
20:00 Bristol City - Man City


Athugasemdir
banner
banner