þri 28. febrúar 2023 22:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Foden: Hefur verið einn af verstu tímum á ferlinum
Mynd: Getty Images

Phil Foden hefur ekki spilað eins mikið og hann hefði viljað undanfarið en hann hefur verið að kljást við smávægileg meiðsli.


Þessi 22 ára gamli leikmaður Manchester City fékk tækifærið í byrjunarliðinu í kvöld og skoraði tvö af þremur mörkum liðsins í enska bikarnum gegn Bristol City.

„Þetta hefur verið einn af verstu tímum á mínum ferli. Ég hef fundið til í fætinum og hef ekki spilað eins mikið. Ég elska að spila fótbolta og þegar ég geri það ekki er ég svolítið pirraður," sagði Foden.

Tímabilið hefur ekki verið eins sannfærandi hjá Man City eins og oft áður en leikmenn liðsins eru staðráðnir í að vinna bikarinn.

„VIð höfum ekki unnið FA bikarinn lengi, við höfum talað um það og við viljum vinna hann. Síðustu leikir hafa verið frábærir, við höfum tekið skref fram á við. Vonandi getum við haldið þessu áfram," sagði Foden.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner