Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 28. febrúar 2023 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frank um Potter: Góður þjálfari getur unnið hjá hvaða félagi sem er
Mynd: Getty Images

Graham Potter stjóri Chelsea er undir mikilli pressu en liðið tapaði grannslag gegn Tottenham um helgina.


Potter hefur aðeins stýrt liðinu til sigurs í einum af síðustu ellefu leikjum. Pressan kemur þó aðallega frá stuðningsmönnum liðsins þar sem stjórnin virðist tilbúin að halda tryggð við þennan fyrrum stjóra Brighton.

Potter greindi frá því á dögunum að starfið hafi tekið gríðarlega á andlegu hliðina þar sem fjölskyldan hans hafi orðið fyrir líflátshótunum.

Thomas Frank stjóri Brentford tjáði sig um stöðu Potter en danski stjórinn sýnir Potter alla sína samúð.

„Hann er mjög góður þjálfari og það hefur sannað sig að hann geti náð góðum árangri. Góður þjálfari getur unnið hjá hvaða félagi sem er. Þetta hefur ekkert með Chelsea að gera. Stundum eru kringumstæðurnar þannig að það er erfitt að fá allt til að smella," sagði Frank.


Athugasemdir
banner
banner