Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 28. febrúar 2023 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man City hefur áhuga á því að fá Kovacic í sínar raðir
Mateo Kovacic.
Mateo Kovacic.
Mynd: EPA
Manchester City hefur áhuga á því að kaupa króatíska miðjumanninn Mateo Kovacic frá Chelsea.

Það er Telegraph sem greinir frá þessu í dag.

Leikmaðurinn mun eiga ár eftir af samningi sínum næsta sumar og því gæti Chelsea reynt að selja hann. Chelsea hefur fengið marga leikmenn til sín og þarf að selja eitthvað líka.

Hinn 28 ára gamli Kovacic kom til Chelsea frá Real Madrid árið 2018 og hefur spilað alls 207 leiki fyrir félagið.

Kovacic er einnig lykilmaður í króatíska landsliðinu þar sem hann hefur spilað 91 A-landsleik.

Pep Guardiola, stjóri Man City, er sagður mikill aðdáandi Kovacic. City vill fá Jude Bellingham, en leiðir ekki það kapphlaup. Því er litið á Kovacic sem góðan kost.
Athugasemdir
banner
banner