Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 28. febrúar 2023 19:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vill feta í fótspor Suarez hjá Barcelona
Vitor Roque
Vitor Roque
Mynd: Getty Images

Brasilíumaðurinn Vitor Roque leikmaður Athletico Paranaense í heimalandinu er gríðarlega spenntur yfir áhuga Barcelona.


Barcelona er sagt vera á eftir þessum 18 ára gamla framherja en hann segist spenntur fyrir því að spila fyrir sama félag og Luis Suarez gerði.

„Við erum svipaðir, við notum líkamlega styrkinn okkar mikið og við elskum að skora mörk. Auðvitað veitir hann mér innblástur. Hann spilar hérna hjá Gremio núna og ég vonast til að skipta á treyjum við hann þegar við mætumst," sagði Roque.

„Ég er mjög spenntur að fá treyjuna hans. Hann veitir mér mikinn innblástur og ég vona að ef ég fer til Barcelona geti ég náð sama árangri og hann. Ég var alltaf hann í FIFA og sá hann í sjónvarpinu og nú fæ ég tækifæri á að spila gegn honum."


Athugasemdir
banner
banner
banner