Sádarnir vilja leikmenn Liverpool - Tottenham til í að hlusta á tilboð í Richarlison - Arsenal reynir við bakvörð
   fim 16. maí 2024 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Evrópuslagur í San Sebastián og Barca fer til Almeria
Mynd: Getty Images
Mynd: EPA
Þriðju síðustu umferð spænska deildartímabilsins lýkur í kvöld þegar þrír áhugaverðir leikir fara fram.

Fjörið byrjar þegar Las Palmas tekur á móti Real Betis og geta heimamenn í Las Palmas bjargað sér frá falli með sigri eða jafntefli.

Þetta verður þó erfiður leikur þar sem gestirnir eru einnig í leit að sigri. Betis er í harðri baráttu við Real Sociedad um síðasta evrópudeildarsætið í La Liga og þarf sigur til að halda forystunni þar.

Skömmu eftir leikslok í Las Palmas mætir Barcelona til leiks á útivelli gegn botnliði Almeria og getur svo gott sem tryggt sér annað sæti deildarinnar með sigri þar.

Að lokum eigast Real Sociedad og Valencia við í Evrópuslag. Sociedad er í harðri baráttu við Betis um fimmta sætið en Valencia er sex stigum þar á eftir.

Sociedad getur svo gott sem tryggt sér sæti í Evrópukeppni á næstu leiktíð með sigri í kvöld.

Leikir kvöldsins:
17:30 Las Palmas - Betis
19:30 Almeria - Barcelona
20:00 Real Sociedad - Valencia
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 38 29 8 1 87 26 +61 95
2 Barcelona 38 26 7 5 79 44 +35 85
3 Girona 38 25 6 7 85 46 +39 81
4 Atletico Madrid 38 24 4 10 70 43 +27 76
5 Athletic 38 19 11 8 61 37 +24 68
6 Real Sociedad 38 16 12 10 51 39 +12 60
7 Betis 38 14 15 9 48 45 +3 57
8 Villarreal 38 14 11 13 65 65 0 53
9 Valencia 38 13 10 15 40 45 -5 49
10 Alaves 38 12 10 16 36 46 -10 46
11 Osasuna 38 12 9 17 45 56 -11 45
12 Getafe 38 10 13 15 42 54 -12 43
13 Sevilla 38 10 11 17 48 54 -6 41
14 Celta 38 10 11 17 46 57 -11 41
15 Mallorca 38 8 16 14 33 44 -11 40
16 Las Palmas 38 10 10 18 33 47 -14 40
17 Vallecano 38 8 14 16 29 48 -19 38
18 Cadiz 38 6 15 17 26 55 -29 33
19 Almeria 38 3 12 23 43 75 -32 21
20 Granada CF 38 4 9 25 38 79 -41 21
Athugasemdir
banner
banner