Það er alvöru stórleikur á dagskrá í ítalska bikarnum í kvöld þar sem Inter tekur á móti Atalanta í fyrsta leik 8-liða úrslitanna.
Það ríkir mikil eftirvænting fyrir þessa viðureign sérstaklega vegna frábærrar velgengni Atalanta í undanförnum leikjum, þar sem liðið hefur skorað 18 mörk í síðustu fjórum keppnisleikjum.
Bæði lið eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti í ítölsku deildinni þar sem Napoli er svo gott sem búið að stinga af miðað við þróun undanfarinna leikja.
Það er því ljóst að Inter og Atalanta munu leggja allt púður í viðureign kvöldsins þar sem Ítalíumeistaratitillinn er svo gott sem utan seilingar.
Leikur kvöldsins:
20:00 Inter - Atalanta
Athugasemdir