„Það var við hæfi að gera þetta úr góðri aukaspyrnu. Skítt að gera það úr vítaspyrnu," sagði Tryggvi Guðmundsson, leikmaður ÍBV, eftir að hafa slegið markametið í 4-1 sigri á Stjörnunni.
Tryggvi var að leika sinn fyrsta leik í sumar og skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu og kom ÍBV í 3-1. Þetta var fyrsti sigur ÍBV í deildinni í sumar.
Tryggvi var að leika sinn fyrsta leik í sumar og skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu og kom ÍBV í 3-1. Þetta var fyrsti sigur ÍBV í deildinni í sumar.
Lestu um leikinn: ÍBV 4 - 1 Stjarnan
„Þetta var jafnt og enn og aftur hafði vindurinn eitthvað að segja. Við vonum að sumarið fari að detta inn. Við fengum á okkur mark en sýndum karakter loksins."
Tryggvi segist ekki vera kominn alveg í sitt besta stand.
Athugasemdir























